06 May 2010 ~ 0 Comments

Þrískiptingin

Sá á Twitter um daginn grein sem bara ansi skemmtilega titil:

Why I don’t like Social Media, but do it for a living.

Eftir að hafa lesið þessa grein tók ég sjálfan mig í smá naflaskoðu. Er ég búinn að vera einbeita mér um of á að nýta “social media” sem sölu og markaðstæki. Hef ég ekki litið nógu vel á þjónustu hliðina?

Í framhaldinu fór ég að skoða þau fyrirtæki sem að mínu skapi eru að nýta þessa miðla rétt.

Símfyrirtækin Nova og Síminn eru að nýta þessa miðla einstaklega vel ásamt flugfélögunum tveimur Icelandair og Iceland Express. En hvað er það sem þau eru að gera sem er svona “successfull”?

Jú þau eru ekki bara að dæla út tilboðum allan liðlangan daginn heldur eru þau að veita upplýsingar.

ATH: Í augnablikinu er bilun í GSM kerfinu sem veldur því að ekki er hægt að hringja eða senda SMS úr GSM símum en 3G kerfið er fínu lagi

Er þetta hið rétta combo?

Er  rétt nýting á samfélagsmiðlum í raun þríþætt? Það er að segja sala/markaðsmál/þjónusta.

Social Media is just a new name for “loving customers”.

Er það þá rangt af fyrirtækjum að vera bara í því að dæla út tilboðum?

Er valið ekki á endanum móttakandans/kúnnans?

Væri gaman að fá ykkar skoðun á þessu.

Leave a Reply