Ráðgjafinn

Hvað getur Ráðgjafinn aðstoðað með?

  • Markaðssetning á netinu í gegnum samfélagssíður (Facebook, Twitter o.s.frv), sé þá alfarið um þín mál á þessum miðlum í samráði við þig.
  • Aukið heimsóknir inn á vefsíðuna með nýtingu aukinna boðleið á netinu án þess að glata mælanleika.
  • Uppsetning á greiningartólum fyrir vefsíður (Google Analytics) og kennsla í aflestri þeirra.
  • Aðstoðað við uppsetningu og uppbyggingu á aðdáandasíðum á Facebook (Fan page).
  • Uppsetning póstlista og kennsla á kerfið
  • Getur einnig mælt með fullt af kláru fólki sem eru snillingar á sínum sviðum, sama hvort það eru vefhönnuðir, grafískir hönnuðir eða hýsingameistarar :)

Hver er Ráðgjafinn?

Ráðgjafinn heitir fullu nafni Þórarinn Hjálmarsson og er Kópavogsbúi á besta aldri með brennandi áhuga á markaðsfræðum og nýtingu internetsins við sömu fræði.

Hann hefur víðtæka reynslu er snýr að markaðsstarfi og hefur tekið þátt í vefhönnun og vefþróun ásamt mikill reynslu af ofangreindum atriðum.

Ráðgjafinn getur líka tekið alfarið að sér “social media” hluta markaðsstarfsins hjá þínu fyrirtæki.

Ráðgjafa-spekin

Að gera hlutina á besta mögulegan hátt án þess að vera með of mikinn tilkostnað, þau fyrirtæki sem Ráðgjafinn mælir með bjóða öll upp á sanngjörn verð fyrir mjög góða þjónustu.

“Social media”  er það sem gerist þegar þú blandar saman söludeild, markaðsdeild og þjónustudeild”

Kostar þetta ekki helling???

Nei alls ekki, besta leiðin til að sannreyna það er að hafa samband :)