22 February 2010 ~ 0 Comments

Póstlistar

Um helgina síðastliðnu Twittaði ég spurningunni “Eru fyrirtæki að nýta póstlistann rétt?”.

Svörin voru mestmegnis á þá leið að svo væri ekki.

Af hverju er það svo, þetta er sá miðill sem hvað auðveldast ætti að vera viðhalda. Fólk virðist vera tilbúið að skrá sig á hina ýmsu póstlista hjá hinum ýmsu fyrirtækjum. Af hverju nýta þau sér það ekki?

Persónulega held ég að fyrirtæki taki póstlistanum sem einhverskonar órjúfanlegum hluta af því að vera með heimasíðu án þess þó að vera með einhverja yfirlýsta stefnu hvernig hann skuli nýttur.

Á hinn bóginn eru einnig fyrirtæki sem eru að nýta póstlistann sinn mjög vel og eru klárlega að skapa sér tekjur með því að nýta þennan tiltörulega ódýra miðil.

Persónulega er ég kominn með nóg af póstlistum sem senda mér ekkert nema smækkaðar útgáfur af blaðaauglýsingunum sínum eða innihaldssnauðan tilboðstexta.

Leave a Reply