Netið 2010 og RIMC
Um liðna helgi var haldin sýningin Netið 2010 í Smáralindinni. Fyrir opnun sýningarinnar var ráðstefnan RIMC haldin í Smárabíó. Mikið var víst af góðum fyrirlesurum en það sem greip mig persónulega mest var hversu lítið var tvítað af ráðstefnunni hvað þá að það var eitthvað læf-bloggað af þessum event.
Svarið fékk ég á föstudaginn þegar ég mætti á Netið 2010 og var tilkynnt að ekkert net hafi verið í ráðstefnu salnum.
Finnst mér það ansi undarlegt að halda slíka ráðstefnu án þess að gera fólki kleift að bera út boðskapinn í gegnum netmiðlana.




Mér tókst nú að tísta gegnum símann bara, en þetta útskýrir af hverju enginn tók þátt í umræðunum á Twitter um #rimc
Sjálf vissi ég ekki að það væri netlaus, var ekki með fartölvu á mér.
Og mér finnst þetta alveg jafn undarlegt og þér.