Facebook,like
Í liðinni viku á f8 ráðstefnu Facebook kynntu þeir miklar breytingar á annars vegar Facebook Connect kerfinu sínu sem og fyrirtækja/vörumerkja hluta Facebook. Það er að segja það sem varðar samtengingu fyrirtækja og vörumerkja við síður þess innan Facebook.
Almenn útbreiðsla á hinum þekkta “Like” takka sem allir þekkja og auðveld samtenging utanaðkomandi síðna við Facebook til þess að sækja ítarlega upplýsingar um þig sem notanda eru helstu fréttirnar.
Þarna skapaði Facebook snilldar verkfæri fyrir hin ýmsu vefsíður/fyrirtæki til þess að kynna sig og vörur sínar án mikils tilkostnaðar og setja þessar upplýsingar beint inn í “lifandi straum” Facebook síðna fólks.
Besta leiðin til að skýra þetta er með dæmi.
Eins og staðan er núna getur þú sem lesandi þessarar síðu meðal annars smellt á “Like” hér neðar í færslunni og með því tilkynnt öllum þínum Facebook vinum að þér hafi líka færslan, þeir fá að vita hvað hún heitir og einnig hvað þessi vefsíða heitir. Ekki nóg með að þessi síða nýti þetta heldur eru síður eins og IMDB og CNN sem setja þetta við allt sitt efni.
Þarna er gott tækifæri fyrir td netverslanir til þess að gefa fólki tækifæri á að líka við ákveðnar vörur og þannig dreifa tenglum á vörurnar á Facebook. Notagildið er einnig mikið fyrir fréttamiðla þar sem “Like” takkinn getur líka sagt “Recommend” eða mæla með eins og CNN gerir.
Fólk er margfalt líklegri til þess að ýta á “Like” takkann frekar en deila efninu á Facebook.
Að sjálfsögðu getur Ráðgjafinn aðstoðað með þetta allt saman



