Enn ein Facebook færslan
Það er að sjálfsögðu ákvörðun notenda síðunnar að vingast við fyrirtæki en þeir þurfa samt að gera sér grein fyrir því hvaða upplýsingar þeir eru að veita fyrirtækjunum og hvaða aðgang þeir eru að veita fyrirtækjunum að persónulegu hlutum líkt og myndum og stöðufærslum.
Það sem fyrirtæki eru hinsvegar ekki að átta sig á er að með því að stofna slíkan aðgang eru þau að brjóta reglur Facebook og í raun mjög einfalt fyrir einstaklinga að hreinsa slík fyrirtæki af síðunni einfaldlega með því að tilkynna þau til Facebook.
Þessi orð eru rituð sem varúðarorð fyrir fyrirtæki, áður en þið farið að eyða peningum í “markaðssetningu” á Facebook passið þá að þið séuð að gera þetta rétt. Væri ansi sárt að vera búinn að eyða bæði tíma og pening í eitthvað sem er einfaldlega brot á reglum og brottrekstrarsök.
Temjum okkur rétt vinnubrögð.




Ég er alveg sammála, nú er Rúmfatalagerinn ehf nýlega búinn að bjóða mér vinskap á Facebook. Mér finnst þetta svo hreint fáránlegt að ég veit eiginlega ekki hvað skal segja. Varð eiginlega orðlaus við það að sjá fyrirtæki á borð við Rúmfatalagerinn klikka svona rosalega á smáatriði…
Sammála. Í raun er þetta ekki áhættunar virði, eins og þú bendir á. Fyrir utan hvað þetta segir manni um virðingu viðkomandi aðila fyrir miðlinum.
Ég viðurkenni að ég samþykki einstaka slíkar vinabeiðnir ef það eru einhverjir mjög nákomnir mér sem eru með fyrirtæki í einstaklingsprófíl formi. En 9 afhverjum tíu slíkum vinabeiðnum hafna ég.
Ég samþykki þær nú ef ég tel þær “relevant” fyrir mig, set þær hinsvegar í grúppu sem hefur ekki aðgang að myndum og öðru. Þannig ég stýri þeim upplýsingum sem þau fá um mig.
Hinsvegar er þetta áhætta sem fyrirtæki eru að taka og eiga eftir að taka í framtíðinni, það er það sorglega.
Ég tek undir allt sem búið er að koma fram hér en er að velta fyrir mér einu. Eitt af stóru verkfærunum sem mörg fyrirtækja eru að nýta sér eru grúppur sem þau stofna utan um áhugamál sem tengjast vöru þeirra. Er það ósiðlegt af fyrirtækjum að stofna slíkar grúppur þar sem grúppurnar eru meira hugsaðar fyrir einstaklinga sem vilja deila sameiginlegum áhugamálum?
Og ef það er ekki ósiðsamlegt er þá einhver leið fyrir aðila að stofna slíka grúppu í nafni fyrirtækisins frekar en hans sjálfs þar sem hann sem persónu vill kannski ekki blanda sér beint inn í markaðssetningu fyrirtækisins?
Fan síður bjóða uppá að setja inn spjallborð á Facebook síðunni. Þar geturðu verið að skapa umræður um þá fyrirtækið, vörur og þjónustu.
Einnig geturðu haft opið fyrir innlegg á síðuna sjálfa, það er að segja ef þú treystir þér að hafa það fyrir opnum tjöldum.
Ég verð að viðurkenna að ég þekki það ekki með grúppur fyrir fyrirtæki og vill því ekkert kommenta á það.