30 March 2010 ~ 0 Comments

Breytingar á Facebook

Samkvæmt grein á Mashable eru stórar breytingar að fara eiga sér stað á Facebook er varðar fyrirtæki.

Líkt og ég hef þrusað oft áður, bæði hér á síðunni og á Twitter þá eru miklir misbrestir hvernig fyrirtæki eru að tækla þennan miðil.

En skv áðurnefndri grein eru miklar breytingar að fara gerast. Notendur Facebook munu innan tíðar ekki gerast aðdáendur fyrirtækja heldur breytist sá takki í “Like”. Takkanum verður meira dreift í kerfinu og fólki gert það auðveldara að tengjast fyrirtækjum.

Facebook vill samhliða þessu auka notkun á sérstökum Facebook linkum, það er að segja www.facebook.com/fyrirtækja nafnið.

Væri gaman að fá ykkar skoðun á þessum breytingum sem virðast vera yfirvofandi.

Leave a Reply